Stutt slörSíð slör Mantilla Smáslör Brúðarmeyjarslör

Ég bíð upp á margar gerðir af brúðarslörum.  

Hvert og eitt eintak af brúðarslöri er einstakt.

Á vefsíðunni má finna myndir af nokkrum algengum gerðum af þeim brúðarslörum sem ég hef verið að sauma og eru þau flokkuð eftir sídd. 

Stutt slör eru fingursídd eða styttri og síð slör eru valssídd eða síðari.  (Sjá töflur)

Brúðarslörin eru 108" eða 275 cm breið og eru því mjög fyllt og glæsileg. 

Einnig er hægt að fá smáslör sem eru 72" eða 185 cm breið en þau eru minni um sig en engu síður glæsileg.

Fjallað er um hverja tegund fyrir sig hér neðar á síðunni.

 

Ég býð núna uppá fjóra liti en þeir eru:

Hvítur: hann fer einkar vel með hvítum kjólum

Demantshvítur: hann hentar bæði með hvítum og ljóskremuðum kjólum

Kremaður (ivory): hann hentar með kremuðum kjólum og koníakslitum kjólum.

Bleikkremaður (rumpink): hann passar vel með bleikum og bleikkremuðum kjólum.


Stutt slör

Þessi slör eru í síddinni 25"/30" (53/75 cm),  30"/36" (75/90cm) en þau eru fáanleg í öllum síddum.  Þau eru öll 108" eða 275 cm breið.

Síð slör

Slörin eru öll í breiddinni 108" eða 275 cm. Síð slör eru frá því að vera 54" eða 135 cm síð upp í 108" eða 275 cm síð þau eru mjög tignarleg og henta vel við glæsilega kjóla með löngum slóða.

 

Mantilla

Mantilla er órykkt hringlaga slör oftast með blundukanti.  Það er ættað frá Spáni eða spænskumælandi löndum og ber keim af arfleifð þeirra.

Til að gefa Mantilla meiri lyftingu er hægt það rykja það aðeins í miðju og svipar það þá til venjulegu tvöföldu slöranna en er síðara í köntunum.

Mantilla er venjulega með þvermál 72" eða 185 cm hið styttsta og allt upp í 108" eða 275 cm að þvermáli.

 

Smáslör

Slörin eru eingöngu 72" eða 185 cm breið og aðeins 25"(65 cm) og 30" (75 cm) síð.

Slörin eru viðaminni en venjulegu slörin en engu að síður falleg og tignarleg. 

Það er hægt að fá þau með öllum tegundum af köntum og kristöllum.

 

Brúðarmeyjarslör   

Slörin eru eingöngu 54" eða 135 cm breið og aðeins 18"-25"(45-65 cm) síð, bæði er hægt að hafa þau einföld eða tvöföld.

Slörin eru falleg og tignarleg og brúðarmeyjarnar fá skemmtilegan svip frá brúðinni. 

Það er hægt að fá þau með öllum tegundum af köntum og kristöllum.


Síðast uppfært 08.03.2010
© 2001 Brúðarslör.is